Kúpull – Leið – Bögglaberi I-II
Dome – En Route – By Bike I-II
2025-6 / 06.12. - 08.02.
Frásögnin er dregin í hlé / A Venus Spilling in Kling & Bang, Reykjavík, Iceland.
Efnin leita hvert í
annað eins og seglar. Sumir hlutir geyma fleiri hluti inni í sér og bök eru
stundum bólstruð. Þessu má safna saman í bunka, skorða ofan á bögglabera og
binda um allt saman með belti. Arkirnar eru breiddar hver ofan á aðra yfir
ávalan flöt. Þær líkja eftir fjallgöngu: ull-lopi-dúnn-vindhelt-vatnshelt. Lög
sem liggja þétt saman og hylja það sem hreyfist.
Blöðin eru æt og í
lófastærð en minna mig á stór diskaloftnet. Þau hafa upplýsingar í miðjunni;
tákn, línur og form. Ég sit í farþegasætinu þegar ég kem auga á loftnetin við
vegkantinn. Þau hverfa áður en mér tekst að lesa á miðjurnar. Ég ímynda mér
hvernig upplýsingarnar hyrfu ef brúnir diskanna snertu jörðina og hringlaga
baksíðurnar kæmu í ljós. Hvolfþök. Flekarnir eru beinhvítir, þungir og sléttir.
Líkaminn fylgir þeim; hermir eftir. Liggur á grúfu með enni við gólf. Hleypir
herberginu í gegnum sig og breytist í kúpul.
Allt er geymt inni í
skelinni eða í hægra eyranu. Þau eru gerð úr því sama. Fingurnir falla
fullkomlega á milli rifbeinanna og hryggurinn tekur lítinn sveig áður en hann
rís upp á milli herðablaðanna. Bakið er bólstrað og holrýmið er kringlótt.
Vinstri öxlin á sér andhverfu. Hún er úr gifsi.
-